föstudagur, júlí 08, 2005

Ha! Er sumar?

Ég er voða hrædd um að sumarið verði aaaalltof fljótt að líða. Ekki nóg með að nú sé kominn júlí heldur er komið að annarri helginni í júlí! Og mér finnst sumarið varla vera byrjað. Það stafar kannski af því að þegar maður var í skóla þá varð alltaf einhver breyting hjá manni um leið og sumarið byrjaði, þ.e. maður hætti að vera í skóla og fór að vinna. Svo vissi maður að haustið var komið þegar maður hætti að vinna og fór aftur í skólann. Nú hætti ég reyndar í skóla í vor en vann alveg jafnmikið svo breytingin er sennilega ekki nógu mikil til að ég fatti að það er komið sumar. Eeeennnn ... ég er ekki enn farin í sumarfrí svo að kannski fatta ég þetta allt saman þá. Verst að þá verður svo langt liðið á sumarið að ég verð líka að fatta að það er að verða búið.

Engin ummæli: